Námskeið í samvinnu við Landnámssetur og Símenntunarmiðstöð Vesturlands
Brennu-Njáls saga veturinn 2009-2010
Námskeiðið um Brennu-Njáls sögu hófst mánudaginn 26. október í Landnámssetri, en þá fjallaði Jón Karl Helgason um Njálu sem menningarfyrirbæri. Aðsókn að námskeiðinu er mjög góð, en samtals mættu 16 þetta kvöld.
Næsti tími verður mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00 en þá kemur Helga Kress í Snorrastofu og fjallar um karnival og kynferði í Njálu.
Myndir frá fyrsta tíma námskeiðsins.
Jón Karl Helgason fjallar um Njálu sem menningarfyrirbæri.
Eftir áramótin er dagskráin eftirfarandi:
25. janúar 2010: Gísli Sigurðsson fjallar um forsögu Njálu í munnlegri hefð (Landnámssetur).
22. febrúar 2010: Helgi Þorláksson (Snorrastofu).
29. mars 2010: Ármann Jakobsson (Landnámssetur).
26. apríl 2010: Bragi Halldórsson (Snorrastofu).
Námskeið fyrri ára
Fornaldarsögur Norðurlanda
Fornaldarsögur Norðurlanda eru ein grein forníslenskra bókmennta. Sögurnar fjalla um atburði i fornöld, þ.e. fyrir landnámsöld, og er sögusviðið nánast allur sá heimur sem Norðurlandabúar þekktu. Sögurnar eru fjölbreyttar og margar hverjar afar skemmtilegar, enda ritaðar í ýmsum tilgangi, bæði til að skemmta og miðla ævafornu sagnaefni.
Námskeið í Norrænni goðafræði
Fjallað var um úrvinnslu og framsetningu Snorra Sturlusonar og annarra, bæði fyrr og síðar, á norrænni goðafræði. Þekktir fræðimenn voru fengnir til að leiðbeina nemendum. Boðið var upp á námskeiðið í tilefni þess að Snorrastofa í Reykholti hefur farið af stað með undirbúning viðamikils verkefnis um norræna goðafræði, sem felur í sér bæði rannsóknir og sýningu.
Íslendingasögur á Vesturlandi
Fjallað um Laxdælu, Gunnlaugs sögu ormstungu, Eyrbyggju og aðrar þær sögur er svæðinu tengjast. Þekktir fræðimenn voru fengnir til að leiðbeina nemendum. Áður hafði höfuðáhersla verið lögð á umfjöllun um Eglu, ekki hvað síst vegna tilkomu Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi, en komið var að því að huga að öðrum meistaraverkum svæðisins. Fjallað var um Egils sögu Skalla-Grímssonar í tengslum við aðrar sögur svæðisins.
Konur á miðöldum
Norrænar konur á miðöldum (um 900—1500), staða þeirra og hlutverk. Til að leiða námskeiðið voru fengnir þekktir fyrirlesarar sem fjölluðu um spennandi efni innan þessa miðalda ramma eins og t.d. Máríu og helgar meyjar aðrar, konur og myndlist, frillulíf á miðöldum, slúður og skriftamál, Gunnhildi kóngamóður og fleira áhugavert úr sjóðum sögunnar.
Egilssaga
Egilssaga lesin og rædd með aðstoð nokkurra sérfræðinga. Söguferð á slóðir Egils Skallagrímssonar á Bretlandseyjum.
Landnám Íslands
Íslendingabók Ara fróða og Landnáma.
Snorri og Sturlungaöldin
Fyrirlesarar: Einar Kárason, Óskar Guðmundsson, Matthías Johannessen, Friðrik Þór Friðriksson, , sr. Geir Waage og Guðrún Nordal.
|